Skip to product information
1 of 5

Lee Stafford

Ice White Toning Mousse

Venjulegt verð 2.490 kr
Venjulegt verð Tilboðsverð 2.490 kr
Tilboð Vara uppseld
Tax included.

Blár tóner og mótun í sömu vörunni! Þessi tóning froða inniheldur öflugar djúpbláar litaragnir sem vinna gegn appelsínugulum og kopar tónum í ljósu hári auk þess að vera mótunarvara. Þú þarft ekki að skola hana úr og því er hún fullkomin þegar þú þarft að tóna hárið strax. Inniheldur vörn gegn UV geislum og verndar einnig hárið gegn hita. Með froðunni getur þú einnig tónað ákveðin svæði sem gætu þurft auka tónun, eins og endana eða parta sem hafa tilhneigingu til að verða hraðar brassý.

  •           Vinnur gegn gulum- appelsínugulum og kopartónum
  •           Mótar hárið og gefur því meiri fyllingu
  •           Þarf ekki að skola úr
  •           Fyrir aflitað hár, hár með ljósar strípur og náttúrulega dökk-ljóst hár

Notkun:

Skref 1: Þvoðu hárið með Lee Stafford Everyday Care sjampóinu eða, fyrir auka tóning áhrif, Lee Stafford Ice White Toning sjampóinu.

Skref 2: Fylgdu með Lee Stafford Everyday Care hárnæringu eða, fyrir auka tóning áhrif, Lee Stafford Ice White Toning hárnæringu.

Skref 3: Skiptu röku hárinu í 4 hluta. Berðu handfylli af Lee Stafford Ice White Toning mousse yfir alla hluta sem krefjast litaleiðréttingar og greiddu jafnt í gegn. Ekki skola. Þvoðu hendur strax eftir að hafa borið froðuna í hárið.

Skref 4: Mótaðu hárið eins og venjulega.

Lee Stafford

Lee Stafford er einn af stærstu hárgreiðslumönnum fræga fólksins í Bretlandi. Hann gerir hár viðskiptavina sinna ekki bara stórkostlegt heldur hefur hann líka þróað margverðlaunaðar hárvörur, auk þess að reka hárgreiðsluskóla og nokkrar fyrsta flokks hárgreiðslustofur í London.

1 of 4