Skilmálar og Persónuvernd

Persónuvernd:

Við notkun á þessari vefsíðu verða til upplýsingar um heimsóknina. Fotia notar þessar upplýsingar til að betrumbæta vefsíðuna og upplifun notenda hennar. Við leggjum höfuðáherslu á varðveislu þessara gagna og afhendum þau ekki þriðja aðila nema um lagalega skyldu sé að ræða.

Vafrakökum er safnað í þeim tilgangi að telja heimsóknir sem og greina notendaferðalag (e. Users journey) um vefsíðuna. Þessar upplýsingar eru greindar með því markmiði að bæta upplifun notenda á vefsíðunni og auðvelda aðgengi notenda að upplýsingum.

Fotia notar Google analytics og Facebook Pixel til að safna gögnum, þar koma fram upplýsingar um hverja heimsókn, hversu lengi hún varði, hvert notandi fór innan vefsíðunnar og hvar hann fór af léninu.

Greiðslur:

Hægt er að greiða fyrir vörur með kreditkorti og debetkorti í gegnum örugga greiðslusíðu RapydPay, millifærslu og Pei.
Fotia fær aldrei kortaupplýsingar viðskiptavina.

Reikningsupplýsingar Fotia eru 515-26-8606 kt. 420919-0180

Sé ekki greitt fyrir pöntun innan sólarhrings er hún gerð ógild.
Senda skal kvittun fyrir greiðslu á fotia@fotia.is

Vöruskil:

Uppfylli seld vara ekki væntingar viðskiptavina er þeim velkomið að hafa samband við Fotia á fotia@fotia.is. Við bjóðum upp á endurgreiðslu eða vöruskipti. Skilafrestur er 14 dagar frá kaupum og þarf að sýna fram á kvittun við vöruskil.

Sendingarmátar

Allar pantanir innanlands eru sendar með Íslandspósti eða Dropp innan tveggja virkra daga frá greiðslu.

Þegar pöntun hefur farið frá Fotia má gera ráð fyrir að Íslandspóstur taki sér 3-7 virka daga til að bera pöntunina til viðskiptavina.

Ábyrgðarsendingar eru bornar út á nærliggjandi pósthús viðskiptavina. Ábyrgðarsending kostar 490 krónur nema verslað sé fyrir meira en 10.000 krónur, þá fellur gjaldið niður.

Sé greitt fyrir heimsendingu er pakkinn keyrður upp að dyrum af Íslandspósti. Heimsending kostar 990 krónur.

Fotia ehf. tekur ekki ábyrgð á að viðskiptavinir séu með rétt merkta póstkassa eða póstlúgur, í þeim tilfellum þar sem merkinga er ábótavant mun Íslandspóstur senda pöntuna til baka og lendir tilfallandi kostnaður á viðskiptavini. Einnig eru viðskiptavinir hvattir til að hafa nöfn og heimilsföng eins ítarleg og kostur er á þegar pantað er.

Hafi pöntun þín ekki borist innan viku frá greiðslu er bent á að hafa samband við Fotia á netfangið fotia@fotia.is

Fotia er einungis netverslun

Hafa samband:

fotia@fotia.is

 

 

Allur réttur áskilinn.