Skip to product information
1 of 8

Ethique

Mintasy Sjampókubbur fyrir venjul. hár

Venjulegt verð 3.290 kr
Venjulegt verð Tilboðsverð 3.290 kr
Tilboð Vara uppseld
Tax included.

Þessi netti, mintugræni sjampókubbur hentar fyrir venjulegt og þurrt hár og hár sem þarfnast viðgerðar. Mintasy inniheldur lífræna kókosolíu, kakósmjör og hreinsandi piparmyntu. Sjampóið hreinsar á mildan hátt og mýkir hárið án þess að þyngja það.

Pro tip: Það er alltaf mælt með því að þvo hárið tvisvar með sjampói í hverjum þvotti til þess að hreinsa bæði hárið og hárvörðinn og ná burt öllum hármótunarefnum.

Þessi magnaði kubbur jafnast á við 3 x 350 ml brúsa af hefðbundnu sjampói.

Til þess að kubburinn endist sem best skaltu geyma hann í íláti þar sem hann helst þurr, við mælum með Ethique geymsluboxunum sem passa nákvæmlega utan um einn sjampókubb og einn næringarkubb.


Size

Notkun

Bleyttu hárið. Renndu Ethique sjampókubbnum létt yfir hárið og leggðu hann svo frá þér. Nuddaðu hárið og skolaðu vandlega úr. Endurtaktu síðan áður en þú setur svo hárnæringu í hárið. Ath. að þér gæti fundist betra að nudda kubbnum frekar milli handanna á nudda síðan höndunum í hárið ef þú epplifir að hárið þitt sé of hreint 

Innihaldsefni

Sodium coco-sulfate, sodium cocoyl isethionate, stearic acid, Cocos nucifera (coconut) fruit, aqua, decyl glucoside, Theobroma cacao (cocoa) seed butter, glycerin, stearyl alcohol, lactic acid, caprylic/capric triglyceride, cetyl alcohol, sodium isethionate, Mentha arvensis (peppermint) leaf oil, behentrimonium methosulfate, mica, CI77891, CI 77288

Ethique

Ethique er margverðlaunað nýsjálenskt snyrtivörumerki sem leggur alla áherslu á vera umhverfisvænt og framleiðir allar sínar vörur í föstu formi, kubbum. Fyrirtækið hefur eitt megin markmið og það er að hjálpa neytendum að sleppa plasti án þess að glata gæðum. Þessir litlu kubbar hafa náð gríðarlegum vinsældum og unnið til fjölda verðlauna meðal annars fyrir að vera eitt sjálfbærasta snyrtivörumerki í heiminum í dag.

Innihaldsefni Ethique varanna eru framleidd með sjálfbærum hætti og af náttúrulegum uppruna og algjörlega án allra plastumbúða. Í stað þess eru umbúðir varanna úr pappa og algjörlega niðurbrjótanlegar, meira að segja límmiðinn sem innsiglar hvert box!

1 of 4