Discovery Pack : Face Cleansers
Krúttlegir kubbar í prufustærð fyrir andlitið!
Þessi krúttkassi inniheldur þrjá hjartalaga kubba sem allir eru fyrir andlit.
Með þessum litlu hjörtum er auðvelt fyrir þig að finna hvernig það er að nota kubba og hvað hentar þér.
Kassinn er einnig tilvalinn sem gjöf fyrir umhverfisvænu vini eða vinkonur þínar.
Í kassanum eru Deep Green andlitshreinsir, hentar sérstaklega vel fyrir venjulega til feita húð.
Hreinsirinn inniheldur sjávarsalt ásamt grænum leir og appelsínuolíu.
Deep Green hreinsar húðina og vinnur gegn umfram olíu í húðinni án þess að þurrka hana.
Hreinsirinn inniheldur ekki sápu og hefur rétt pH-gildi fyrir húðina.
Bliss Bar er mildur andlitshreinsir sem hentar fyrir venjulega og þurra húð. Ef þú elskar kókos þá er þessi hreinsir eitthvað fyrir þig.
Inniheldur kókossmjör, glýserín sem unnið er úr plöntum og leir. Bliss Bar hreinsar burt farða án þess að þurrka húðina og hentar því líka fyrir viðkvæma húð.
100% sápu- og ilmefnalaus.
Gingersnap er mildur andlitsskrúbbur fyrir allar húðgerðir. Skrúbburinn er m.a. gerður úr hrásykri, engifer og dassi af kanil.
Hann hreinsar burt dauðar húðfrumur á mildan hátt og skilur eftir góðan raka í húðinni. Gingersnap má einnig nota sem andlitshreinsi.
Innihaldsefni :
Deep Green: Sucrose, garcinia indica (kokum) seed butter, pumice, sodium bicarbonate, sodium cocoyl isethionate, stearyl alcohol, euphorbia cerifera (candelilla) cera, stearic acid, molasses, cetyl alcohol, zingiber officinale (ginger) root powder, cinnamomum zeylanicum bark (cinnamon) extract, sodium isethionate.
Bliss Bar: Sodium cocoyl isethionate, Cocos nucifera (coconut) fruit, stearic acid, aqua, decyl glucoside, cocoyl methyl glucamide, cetyl alcohol, stearyl alcohol, glycerin, maltodextrin, sodium isethionate, cocos nucifera (coconut) fruit powder, benzyl alcohol, cyamopsis tetragonoloba (guar) gum, kaolin, dehydroacetic acid.
Gingersnap: Sucrose, garcinia indica (kokum) seed butter, pumice, sodium bicarbonate, sodium cocoyl isethionate, stearyl alcohol, euphorbia cerifera (candelilla) cera, stearic acid, molasses, cetyl alcohol, zingiber officinale (ginger) root powder, cinnamomum zeylanicum bark (cinnamon) extract, sodium isethionate.
Ethique
Ethique er margverðlaunað nýsjálenskt snyrtivörumerki sem leggur alla áherslu á vera umhverfisvænt og framleiðir allar sínar vörur í föstu formi, kubbum. Fyrirtækið hefur eitt megin markmið og það er að hjálpa neytendum að sleppa plasti án þess að glata gæðum. Þessir litlu kubbar hafa náð gríðarlegum vinsældum og unnið til fjölda verðlauna meðal annars fyrir að vera eitt sjálfbærasta snyrtivörumerki í heiminum í dag.
Innihaldsefni Ethique varanna eru framleidd með sjálfbærum hætti og af náttúrulegum uppruna og algjörlega án allra plastumbúða. Í stað þess eru umbúðir varanna úr pappa og algjörlega niðurbrjótanlegar, meira að segja límmiðinn sem innsiglar hvert box!
Tengdar vörur
Skoða allt-
Bamboo In-Shower Container (2 litir)
Venjulegt verð 2.769 krVenjulegt verðVöruverð / per -
Storage Tray (2 týpur)
Venjulegt verð 2.769 krVenjulegt verðVöruverð / per -
Shampoo & Soap Saving Bag
Venjulegt verð 2.190 krVenjulegt verðVöruverð / per -
Bliss Bar Face Cleanser Normal/Dry skin
Venjulegt verð Frá 1.489 krVenjulegt verðVöruverð / per