Skip to product information
1 of 6

First Aid Beauty

Sensitive Skin Bestsellers

Sensitive Skin Bestsellers

Venjulegt verð 5,490 ISK
Venjulegt verð Tilboðsverð 5,490 ISK
Tilboð Vara uppseld
Taxes included.

Gjafasett fyrir allar húðgerðir sem hentar einstaklega vel fyrir viðkæma húð og exemhúð. Settið inniheldur:

Ultra Gentle Cream-to-Foam Face Cleanser (28,3 g)
Ilmefnalaus, mildur gel andlitshreinsir fyrir viðkvæma húð sem hreinsar burt farða og óhreinindi á árangursríkann hátt og skilur húðina eftir mjúka og tandurhreina. Þessi mildi hreinsir strípar ekki húðina af náttúrulegum olíum og inniheldur rétt pH-gildi fyrir húðina og viðheldur þannig réttu sýrustigi og þurrkar húðina ekki upp. Hentar öllum húðgerðum, líka viðkvæmri húð.

Brighten + Glow Facial Radiance Pads (28 stk)
Andlitsskífur sem skrúbba húðina á mildan en áhrifaríkan hátt með AHA-sýrum. Glýkólsýra og mjólkursýra hjálpa til við að fjarlægja dauðar húðfrumur, bæta áferð húðarinnar og gefa henni bjartara og jafnara yfirbragð. Andlitsskífurnar hjálpa einnig til við að minnka ásýnd svitahola og undirbúa húðina fyrir fallega og jafna förðun. Henta til daglegrar notkunar.

Ultra Repair Cream (56,7 g)
Ein af allra vinsælustu vörum frá First Aid Beauty. Ultra Repair Cream er djúsí og nærandi rakakrem sem gefur húðinni samstundis langvarandi raka. Kremið smýgur vel inn í húðina, róar hana og skilur hana eftir mjúka og vel nærða. Hefur reynst mörgum vel gegn exemi og þurrkublettum. Hentar bæði fyrir andlit og líkama.

Magn
Skoða nánar