Skip to product information
1 of 5

Lee Stafford

Scalp Love Anti-Breakage Conditioner

Venjulegt verð 2.220 kr
Venjulegt verð Tilboðsverð 2.220 kr
Tilboð Vara uppseld
Tax included.

Ofur rakagefandi hárnæring sem róar og nærir þurran og viðkvæman hársvörð. Næringin vinnur gegn flösu og þurrki, styrkir hárið og verndar það gegn mengun. Inniheldur blöndu af B-vítamínum sem næra og styrkja hársvörðinn og hárið ásamt E- og C-vítamíni sem vernda hárið og bæta mýkt og glans.

Um Scalp Love

Heilbrigt hár byrjar alltaf með heilbrigðum hársverði. Scalp Love er samsett af öflugum innihaldsefnum sem vinna gegn viðkvæmum og ertum hársverði. Hýalúrón sýra, Níasínamíð og salisílsýra eru öflug innihaldsefni sem eru algeng í húðvörum. En vissir þú að þau geta líka hjálpað hárinu þínu og hársverðinum? Scalp Love línan okkar var einmitt innblásin af húðvörum og þeirra virku innihaldsefnum. Línunni er ætlað að meðhöndla bæði hár og hársvörð, því heilbrigt hár byrjar jú með heilbrigðum hársverði. Ef þú ert með þurran og viðkvæman hársvörð og hár sem vantar ást getur þú gefið því ástina sem það á skilið með Scalp Love.

Notkunarleiðbeiningar

Nuddaðu næringunni í bæði hár og hársvörð, láttu bíða í 3 mínútur og skolaðu síðan úr.

Lee Stafford

Lee Stafford er einn af stærstu hárgreiðslumönnum fræga fólksins í Bretlandi. Hann gerir hár viðskiptavina sinna ekki bara stórkostlegt heldur hefur hann líka þróað margverðlaunaðar hárvörur, auk þess að reka hárgreiðsluskóla og nokkrar fyrsta flokks hárgreiðslustofur í London.

1 of 4