Skip to product information
1 of 4

Lee Stafford

Root Boost Mousse Spray

Venjulegt verð 2.330 kr
Venjulegt verð Tilboðsverð 2.330 kr
Tilboð Vara uppseld
Tax included.

Það er svo mikilvægt að undirbúa fíngert englahár fyrir mótun ef þú vilt fá góða fyllingu og aukið rúmmál. Þessi margverðlaunaða Root Boost Mousse lyftir og fyllir hárið frá rótum og niður. Brúsinn hefur mjóan stút svo þú getir sprautað froðunni beint í hárrótina þar sem fyllingin hefst. Froðan klístrast ekki og gefur hárinu langvarandi hald svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að hárið falli flatt.

  •          Gefur hárinu þínu langvarandi lyftingu sem endist
  •          Froðan er sett í rót hársins – svo lyftingin verði sem mest
  •          Stjörnu innihaldsefnið PRO-QUAT™ Complex gefur áferð og hald án þess að klístrast, jafnvel í fíngerðu hári
  •          Fyrir fíngert, þunnt eða flatt og líflaust hár

Notkun:

Skref 1: Eftir að hafa þvegið hárið með Volume sjampóinu og hárnæringunni skaltu hrista brúsann vel fyrir notkun.

Skref 2: Lyftu hluta af handklæðaþurru hári og sprautaðu úr brúsanum beint á rótarsvæðið. Þú gætir fundið fyrir örlitlum kulda.

Skref 3: Endurtaktu þetta ferli á þeim svæðum sem þú vilt hafa meiri fyllingu. Greiddu í gegn og blástu síðan eins og venjulega með blástursburstanum.

Lee Stafford

Lee Stafford er einn af stærstu hárgreiðslumönnum fræga fólksins í Bretlandi. Hann gerir hár viðskiptavina sinna ekki bara stórkostlegt heldur hefur hann líka þróað margverðlaunaðar hárvörur, auk þess að reka hárgreiðsluskóla og nokkrar fyrsta flokks hárgreiðslustofur í London.

1 of 4