Skip to product information
1 of 3

Lee Stafford

Bleach Blondes : Purple Toning Shampoo

Venjulegt verð 1.869 kr
Venjulegt verð Tilboðsverð 1.869 kr
Tilboð Vara uppseld
Tax included.

Öflugt fjólublátt sjampó sem er bráðnauðsynlegt fyrir litaleiðréttingu í ljósu hári.

Nýlitað ljóst hár hefur fallegan lit og lítur frábærlega út, en með tímanum getur hárið fengið koparlitaða tóna og gula slikju. Þetta girnilega djúpfjólubláa sjampó er gríðarlega vinsælt. Það er sérstaklega hannað til þess að lýsa hárið smám saman og útiloka kopar- og gulleita tóna, þannig að það fái sinn upprunalega hárgreiðslustofu lit. Sjampóið gerir hárið tandurhreint og gefur því náttúrulegan gljáa. Inniheldur litavörn sem hindrar það að liturinn eyðist ekki smám saman af völdum mótunar, sólarljóss og útfjólublárra geisla. Athugaðu að sjampóið lýsir hárið og ætti því ekki að vera of lengi í hárinu eða notað daglega.

Berðu í blautt hár, nuddaðu varlega þar til freyðir og skolaðu vel úr. Þetta er tóner sjampó sem breytir því háralitnum og ætti að notast í öðrum hverjum þvotti. Við mælum með að nota Colour Love sjampóið í hin skiptin til að halda tóninum. Hafðu sjampóið í hárinu í 1-5 mínútur eftir óskuðum áhrifum.

Lee Stafford

Lee Stafford er einn af stærstu hárgreiðslumönnum fræga fólksins í Bretlandi. Hann gerir hár viðskiptavina sinna ekki bara stórkostlegt heldur hefur hann líka þróað margverðlaunaðar hárvörur, auk þess að reka hárgreiðsluskóla og nokkrar fyrsta flokks hárgreiðslustofur í London.

1 of 4