Þurrkur í leggöngum – falið en algengt vandamál

Þurrkur í leggöngum – falið en algengt vandamál

Þurrkur í leggöngum er mun algengari en margir gera sér grein fyrir. Þótt þurrkurinn sé oft tengdur tíðahvörfum getur hann komið fram á öllum aldri m.a. vegna hormónabreytinga, brjóstagjafar, ákveðinna lyfja, streitu, krabbameinsmeðferða eða einfaldlega vegna náttúrulegra breytinga á rakajafnvægi líkamans. Afleiðingarnar geta verið kláði, sviði, erting, núningur, óþægindi við kynlíf og minni vellíðan almennt.

Margar konur grípa til sleipiefna til að draga úr óþægindum en þau eru þó aðallega hönnuð fyrir typpi til að minnka núning við samfarir. Þau gefa píkunni þinni ekki þá næringu og raka sem viðkvæma húðin hennar þarf.

Vipstick Serum er fyrir píkur

Vipstick Serumið er þróað af konum, bara fyrir píkur. Serumið er í föstu formi sem stifti og kemur í þægilegum og veskisvænum umbúðum. Þetta þýðir að þú ert ekki að sulla með eitthvað gel sem fer út um allt. Vipstick Serumið er borið beint á píkuna, hvenær sem hún þarf raka eða smá pick me up”. Hún fær strax góðan raka og öll erting og núningur er á bak og burt. Rakagefandi formúlan inniheldur meðal annars hýalúrónsýru, nærandi jurtasmjör, peptíð og plöntuþykkni sem styðja við rakastig elsku píkunnar þinnar.

EN þetta er ekki það eina sem Vipstick Serum gerir, heldur hefur það hitaaukandi og örlítið kítlandi áhrif sem vekja svæðið upp og auka næmni þess. Þessi áhrif geta hjálpað þér að njóta betur í samförum eða komið ykkur (þér og píkunni) í rétta gírinn. Svo skemmir ekki að Vipstick Serum er hægt að fá í nokkrum „bragðtegundum”! Kannski viljið þið bragðast eins og djúsí ferskja í dag en rómantískur vanillubúðingur á morgun (fliss emoji)

Þið megið nota Vipstick Serumið daglega – svo þú getur tekið það með þér í veskið hvert sem er.

Vipstick fyrir leggangaþurrk

Smelltu á myndina til þess að lesa nánar um Vipstick frá Hygiene Hero.

Serumið er án hormóna, estrógens, soja, parabena og gerviilmefna og hentar því þeim sem kjósa hormónalausa umhirðu. Það inniheldur einnig postbiotic-blöndu sem er hönnuð til að styðja við heilbrigt örverusamfélag ytri kynfæra, auk innihaldsefna sem hjálpa til við að róa og verja húðina gegn daglegum núningi.

Heilbrigði ytri kynfæra á skilið sömu athygli og önnur húðumhirða. Hvort sem þurrkurinn er tímabundinn eða hluti af stærri breytingum getur regluleg og nærandi umhirða hjálpað til við að auka þægindi, sjálfstraust og vellíðan. Hugsaðu vel um píkuna þína.

Back to blog