Inngróin hár? Nei takk ✋
Share
Þú rakaðir þig. Húðin var silkimjúk. Allt leit vel út.
Svo mætti hún - Litla rauða bólan sem enginn bauð í partýið.
Inngróin hár eru algeng eftir rakstur, vax og aðra háreyðingu – sérstaklega á bikinílínu, fótleggjum og undir höndum. En með smá fyrirhyggju og góðum venjum er hægt að minnka verulega líkurnar á þeim.
Af hverju fáum við inngróin hár?
Inngróið hár myndast þegar hár vex aftur inn í húðina í stað þess að koma upp á yfirborðið. Húðin getur þá brugðist við með roða, bólgu og kláða.
Þetta er sérstaklega algengt hjá fólki með þykkt eða hrokkið hár og getur aukist þegar rakað er mjög þétt upp við húðina.

5 leiðir til að halda inngrónum hárum í skefjum
1. Ekki raka á móti hárvextinum
Já, við vitum. Það verður extra slétt. En húðlæknar mæla almennt með því að raka í sömu átt og hárið vex ef þú ert gjörn/gjarn á að fá inngróin hár og rakstursbólur.
2. Ekki raka þurra húð
Mýktu húðina og hárin fyrst með volgu vatni og notaðu rakgel eða rakfroðu. Notaðu hreint og beitt rakvélarblað og reyndu að fara ekki aftur og aftur yfir sama svæðið.
3. Fjarlægðu dauðar húðfrumur – án þess að skrúbba húðina í tætlur
Dauðar húðfrumur geta safnast fyrir við hársekkina og gert hárinu erfiðara fyrir að komast upp á yfirborðið.
First Aid Beauty Ingrown Hair Pads innihalda bæði glycolic acid (AHA) og salicylic acid (BHA) sem hjálpa til við að losa dauðar húðfrumur og halda húðinni sléttri. Skífurnar eru sérstaklega ætlaðir svæðum sem eru viðkvæm fyrir inngrónum hárum og má byrja að nota daginn eftir rakstur eða vax.
4. Gefðu húðinni smá TLC
Rakstur og vax geta ert húðina og því borgar sig að hugsa vel um hana á milli raksturs/vax.
Fler Hoily Drops eru þróaðir fyrir húð sem er viðkvæm fyrir ertingu og inngrónum hárum eftir háreyðingu. Formúlan inniheldur meðal annars tea tree olíu, tamanu olíu og bisabolol ásamt mýkjandi jurtaolíum sem hjálpa til við að næra og róa húðina.
Nokkrir dropar á bikinílínu, fótleggi, undir hendur eða skeggsvæði – og húðin fær ást á milli raksturs/vax.
5. Og hvað sem þú gerir... ekki kroppa!
Við sjáum þig með plokkarann...
Að kreista, kroppa eða grafa eftir inngrónum hárum getur aukið ertingu og bólgu og jafnvel aukið hættu á sýkingu eða örum.
Ef inngróið hár verður mjög rautt, heitt, bólgið eða sársaukafullt er betra að fá ráðleggingar frá heilbrigðisstarfsfólki.
Nýja rútínan þín ✨
Rakaðu → róaðu → losaðu → mýktu → ekki kroppa ✨
Rakaðu með hárvextinum → róaðu húðina eftir rakstur, t.d með Hoily Drops → losaðu dauðar húðfrumur með mildri AHA/BHA húðflögnun, eins og FAB Ingrown Hair Pads → mýktu og nærðu húðina → Og plokkarinn? Leggðu. Hann. Niður.