Hárlos og þunnt hár – hvað veldur því og hvað er til ráða?

Hárlos og þunnt hár – hvað veldur því og hvað er til ráða?

Er hárið þitt að þynnast? Hér er það sem þú þarft að vita um hárlos og heilbrigðan hárvöxt.

Hárlos og þynning hárs eru algengari vandamál en margir gera sér grein fyrir og ástæðurnar geta verið fjölmargar. En áður en þú ferð að örvænta yfir hárunum í niðurfallinu er gott að vita að hárlos er að vissu marki fullkomlega eðlilegt. Hárið okkar er nefnilega í stöðugri endurnýjun.

Það er eðlilegt að missa um 50–100 hár á dag. En þegar hárlosið verður hins vegar meira en venjulega eða hárið fer að þynnast á ákveðnum svæðum getur verið ástæða til að skoða málið betur.

Algengar ástæður fyrir auknu hárlosi eru meðal annars:

  • Streita: Langvarandi eða mikið álag getur raskað náttúrulegu vaxtarferli hársins. 
  • Hormónabreytingar: Meðganga, fæðing, breytingaskeið og ákveðnar hormónatengdar breytingar geta haft áhrif á hárvöxt.
  • Skortur á næringarefnum: Járnskortur, ónóg próteinneysla og skortur á ákveðnum vítamínum geta haft áhrif á hárheilsu.
  • Erfðir: Erfðatengt hárlos getur valdið því að hárið þynnist smám saman.
  • Hármeðferðir og hitatæki: Mikill hiti, aflitun og stífar hárgreiðslur geta valdið hárbroti og í sumum tilfellum stuðlað að hárlosi.

Getur streita virkilega valdið hárlosi?

Já algjörlega, við líkamlegt eða andlegt álag geta fleiri hársekkir en venjulega farið úr vaxtarfasa yfir í hvíldarfasa. Nokkrum mánuðum síðar getur það leitt til þess að óvenjumikið hár fellur af. Þetta á ekki aðeins við um stress í vinnu eða prófum heldur áföll sem dynja yfir eins og t.d. ástvinamissir, sambandsslit eða veikindi.

Góðu fréttirnar eru þær að þessi tegund hárloss er oft tímabundin og hárvöxturinn getur jafnað sig þegar orsökin er gengin yfir.

Heilbrigt og fallegt hár byrjar innan frá

Við hugsum gjarnan fyrst um sjampó, næringu og hármaska þegar við viljum bæta hárheilsuna. En það sem við borðum skiptir líka máli. Hárið er að stórum hluta gert úr próteininu keratíni og líkaminn þarf fjölbreytt næringarefni til að viðhalda eðlilegum hárvexti.

Nokkur næringarefni skipta þar sérstaklega máli:

  • Bíótín (B7-vítamín): Stuðlar að viðhaldi heilbrigðs hárs. Bíótínskortur getur valdið hárlosi, þótt slíkur skortur sé fremur sjaldgæfur.
  • Sink: Stuðlar að viðhaldi heilbrigðs hárs og gegnir mikilvægu hlutverki í starfsemi frumna.
  • Járn: Járnskortur getur tengst auknu hárlosi, sérstaklega hjá konum.
  • D-vítamín: Gegnir hlutverki í starfsemi hársekkja og skortur hefur verið tengdur ákveðnum tegundum hárloss.
  • Prótein: Næg próteinneysla er mikilvæg þar sem hárið er að mestu byggt upp úr próteinum.

Fjölbreytt og næringarríkt mataræði er því ein af undirstöðum heilbrigðs hárs. Ef grunur leikur á næringarskorti er skynsamlegt að láta kanna hann áður en byrjað er að taka fæðubótarefni.

HairBurst – hárumhirða sem hugsar um meira en bara útlitið

Hairburst er vörumerki sem leggur áherslu á hárheilsu og býður upp á vörur sem styðja við góða hárumhirðu, bæði innan frá og utan.

Vöruúrvalið inniheldur meðal annars hárvítamín, sjampó, hárnæringar og sérhæfðar meðferðir fyrir hár og hársvörð.

Hairburst hárvítamín

Hárvítamín frá Hairburst eru hugsuð sem viðbót við fjölbreytt mataræði og geta hjálpað til við að tryggja inntöku tiltekinna næringarefna sem tengjast eðlilegri hárheilsu. Þau eru þó ekki töfralausn við öllum tegundum hárloss. Árangurinn fer meðal annars eftir því hvort næringarskortur sé til staðar og hvað veldur hárlosinu.

Hairburst sjampó og hárnæring

Rétt hárumhirða getur skipt miklu máli þegar hárið er viðkvæmt, þurrt eða brotnar auðveldlega.

Sjampó og hárnæring frá HairBurst eru hönnuð til að vera hluti af umhirðu sem hjálpar til við að halda hárinu mjúku, meðfærilegu og heilbrigðu í útliti.

Hairburst hármaskar og hármeðferðir

Hár sem verður fyrir miklu álagi vegna t.d. hitamótunartækja, litunar eða slítandi hárgreiðslna getur svo þurft aukna umhirðu. Þar erum við að tala um djúpnæringar og leave-ins. Þannig vörur eru sérhannaðar til að minnka flækjur og þannig dregið úr brotum.

Ekki gleyma hársverðinum

Heilbrigður hársvörður er mikilvægur hluti af heilbrigðum hárvexti. Frá HairBurst er einnig hægt að finna sérstakan hársverðarskrúbb og serum. Mikilvægt er þó að hafa í huga að snyrtivörur fyrir hársvörð koma ekki í stað læknisfræðilegrar meðferða og í einhverjum tilfellum getur þurft að leita til læknis.

6 góð ráð fyrir heilbrigðara og sterkara hár

1. Gefðu hárinu næringu innan frá. Borðaðu fjölbreytta fæðu og gættu þess að fá nægilegt magn af próteinum, vítamínum og steinefnum. Eat the rainbow eins og einhver sagði.

2. Sparaðu hitann. Dragðu úr notkun hitamótunartækja eins og hárblásara, sléttujárna og krullujárna og ef þú þarft að nota þau skaltu ávallt muna eftir hitavörninni

3. Hugsaðu vel um hársvörðinn. Þvoðu hárið eftir þörfum og veldu vörur sem henta hárgerð þinni og ástandi hársvarðarins.

4. Forðastu óþarfa tog. Mjög þétt tögl, slick back, clip-ins og hárlengingar geta valdið auknu álagi á hársekkina. sem getur leitt til þess að hárið losni úr hársekknum.

5. Gefðu líkamanum hvíld. Góður svefn, regluleg hreyfing og streitustjórnun eru mikilvægir þættir almennrar heilsu.

6. Sýndu þolinmæði. Hár vex að meðaltali um einn sentímetra á mánuði og breytingar á hárvexti taka því tíma. Góð hárumhirða er langtímaverkefni, ekki skyndilausn. Anda og njóta þess að vera í hárferðalagi.

Hvenær ætti að leita aðstoðar vegna hárloss?

Ef þú tekur eftir skyndilegu eða miklu hárlosi, skallablettum eða viðvarandi þynningu er mikilvægt að leita ráða hjá lækni.

Stundum getur hárlos tengst undirliggjandi þáttum eins og járnskorti, skjaldkirtilsvandamálum eða hormónabreytingum sem mikilvægt er að greina og meðhöndla.

Gefðu hárinu þá umhirðu sem það á skilið

Heilbrigt hár snýst ekki eingöngu um hvaða vörur við notum heldur líka um næringu, lífsstíl og góða daglega umhirðu. Með því að huga að hárinu bæði innan frá og utan getum við skapað góðar forsendur fyrir sterkara, heilbrigðara og fallegra hár.

Kynntu þér hárvörurnar frá HairBurst og finndu þá hárumhirðu sem hentar þér best.

Back to blog