Fíngert og flatt hár?

Fíngert og flatt hár?

Fékkstu fíngert og brothætt hár í vöggugjöf? We feel your pain! Það getur verið mikið bras að gera greiðslur í fíngert hár og allt rennur strax úr.. … tölum nú ekki um ef það er brothætt líka og verður aldrei síðara en einhver ákveðin sídd. Ef þetta hljómar eins og þú, read on dear friend! 

Við vorum að fá til okkar spennandi nýjung frá John Frieda sem heitir PROfiller+ og samanstendur af sjampói, næringu og spreyi. Vörurnar innihalda allar blöndu af hýalúronsýru sem gefur þyngdarlausan raka, ásamt bíótíni sem styrkir hárið og ver það gegn broti. Línan inniheldur einnig sérstaka blöndu efna sem þróuð var á rannsóknarstofu John Frieda og ber heitið “Texture Building Technology”. Þessi blanda inniheldur agnarsmá mólekúl sem gefa hárinu meiri áferð og fyllingu. Sem þýðir, fyrir okkur sem erum með fíngert englahár - að hárið verður aðeins stamara svo auðveldara er að gera í það greiðslur OG það verður meira puffy. 

Við ætlum aðeins að fara betur yfir vörurnar í þessari nýju línu John Frieda: 

PROfiller+ Thickening Shampoo 

Kostir: Inniheldur micellar vatn sem hreinsar hárið og uppsöfnuð óhreinindi á einstaklega mildan hátt auk þess að styrkja innviði hársins svo það brotnar síður. Hárið virkar samstundis bústnara og meira um sig strax eftir fyrstu notkun. 

PROfiller+ Thickening Conditioner 

Kostir: Sérhæfða formúlan í næringunni notar áferðaruppbyggjandi tækni sem eykur bilið á milli hárstrendingana og gerir hárið þannig meira um sig. Gefur hárinu einnig þyngdarlausa næringu sem hentar vel þunnu og fíngerðu hári. 

PROfiller+ Thickening Spray 

Kostir: Inniheldur sömu áferðartækni og hinar vörurnar sem eykur fyllingu hársins. Formúlan í spreyinu umlykur hvert hár til að gefa því létt hald og ver það gegn skemmdum af völdum hitamótunartækja upp að 220 gráðum. 

 

Back to blog