Færðu nuddsár?

Færðu nuddsár?

Þeir sem hafa fengið nuddsár vita hversu sárt það er og hvað það getur verið erfitt að ná að losa við þau. Nuddsár geta myndast á mörgum stöðum líkamans og við allskyns hreyfingu. Þú gætir t.d. fengið nuddsár á geirvörtur eða innanverð læri í lengri hlaupum, ströndinni eða á göngugötunni í heitri borg.

En af hverju kemur núningur?

Núningur á sér stað þegar sama svæðið á líkamanum nuddast ítrekað saman eða við föt. Hiti, sviti og raki auka líkur á núning, sem getur leitt til roða, ertingar og óþæginda. Þó að íþróttamenn finni oft fyrir núningi, getur það komið fyrir alla - sérstaklega þegar við kíkjum til heitari landa eða erum í mikilli hreyfingu.

Húðlæknar mæla almennt með að koma í veg fyrir núningssár áður en þau myndast og þar kemur vinsæla Anti-Chafe Stick frá First Aid Beauty til sögunnar.

Verndarhjúpur fyrir viðkvæm svæði

Anti-Chafe Stick er sérstaklega samsett til að búa til léttan, svitaþolinn hjúp yfir viðkvæm svæði sem hjálpar til við að draga úr núningi. Svæði eins og innanverð læri, handarkrika og undir brjóstum.

Anti-Chafe Stick kemur í handhægum umbúðum sem auðvelt er að grípa með sér og hafa með sér hvert sem er.

Ekki bara trúa okkur, þetta er það sem aðrir hafa að setja um Anti-Chafe Stick.

Eftir einnar viku prófun 55 þátttakenda:

  • Voru 96% sammála um að stiftið hélt þeim núningslausum í allt að 10.000 skref.
  • Voru 92% sammála um að stiftið smitaðist ekki í fatnað.
  • Voru 98% sammála um að þetta væri einföld og þægileg lausn til að koma í veg fyrir núning.
Back to blog